Í bókinni Lostaleikir opinberar kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox öll leyndarmálin sem eiga eftir að senda ykkur upp í sjöunda unaðshimin; hún skemmtir, kitlar og hneykslar og segir frá öllu því sem þið getið gert og ættuð að gera til að njóta kynlífsins í botn. Og Tracey veit hvað hún syngur, hún hefur prófað þetta allt…
Tracey Cox hefur skrifað fjölda metsölubóka um kynlíf og sambönd, þar á meðal hinar geysivinsælu bækur Súpersex, Súperflört, Sjortarar og Kama Sutra sem allar hafa komið út hérlendis. Hún hefur einnig stjórnað geysivinsælum sjónvarpsþáttum og gefið góð ráð í ýmsum fjölmiðlum. Bækur hennar hafa komið út um víða veröld enda miðlar hún fræðslu um hvílubrögð og samskipti á skemmtilegan hátt.
Heimasíða Tracey Cox
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd daginn eftir að hún berst. Það tekur venjulega 1-4 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá getur þú fengið hana afhenda í Bútik í Turninum, Smáratorgi 3 (2.hæð) í Kópavogi milli kl 9 og 14 alla virka daga.
Starfsfólk Monu