Layaspot er einn vinsælasti titrarinn frá Fun Factory og ekki að ástæðulausu. Hann er lítill, nettur og hljóðlátur en samt með öflugustu titrurum á markaðnum. Layaspot er lítið egg sem passar vel í lófa. Hann er hannaður til að liggja yfir lífbeininu og renna inn á milli innri barmana.
Hann örvar því ekki bara efsta hluta snípsins heldur einnig þann hluta sem liggur undir innri börmunum. Vegna smæðar og lögunnar Layaspot þá hentar hann vel fyrir þær sem vilja hafa titrara við samfarir til að fá fullnægingu. Stjórntakkarnir eru vel staðsettir og þú eykur eða minnkar titringinn með því að ýta á + eða - takkann.
Allt með annarri hendi á meðan hin er frjáls til að gera eitthvað skemmtilegt. Einnig eru þrjár mismunandi púlsstillingar sem koma á eftir hæðstu titrings stillingunni.
Layaspot er úr plasti sem kallast elastomed en það er eiturefnalaust og veldur ekki ofnæmi.
Auðvelt er að þrífa titrarann með vatni og sápu.
Allar unaðsvörur frá Fun Factory eru vandaðar og skemmtilegar vörur. Það er stefna Fun Factory að framleiða skemmtileg erótísk leikföng úr öruggum efnum. Öll leikföng Fun Factory eru annað hvort úr 100% læknasilikoni eða elastomed, sem er eiturefnalaust plast.
Litagleðin er mikil og áhersla löggð á að leikföngin séu ekki eftirlíkingar af typpum. Fun Factory vill að konur, menn og pör hafi gaman af kynlífi og njóti þess að vera góð við sig sjálf og hvort annað. Leikgleðin er því alsráðandi í hönnuninni.
Rafhlöður; 2 AAA sem fylgja ekki með.
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd daginn eftir að hún berst. Það tekur venjulega 1-4 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá getur þú fengið hana afhenda í Bútik í Turninum, Smáratorgi 3 (2.hæð) í Kópavogi milli kl 11 og 18 alla virka daga.
Starfsfólk Monu