Skilmálar og reglur
Skilmálar og reglur
Mona.is tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist fyrir það sem pantað var. Þegar greiðsla berst sendum við þér staðfestingu í netpósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og Emoll ehf. sem sér um afgreiðslu fyrir Mona.is.
Afhending
Þær vörur sem þú pantar á vefnum eru sendar til þín í ómerktum pakka með Íslandspósti. Það getur komið fyrir að vörur séu tímabundið uppseldar og ef svo er látum við þig vita með tölvupósti
Sendingarkostnaður
Ef þú vilt fá pantaðar vörur sendar á pósthúsið bætast 690 við vöruverðið, en 1.150 krónur bætast við ef þú vilt fá vörur sendar heim að dyrum.
Greiðslur og öryggi við pantanir – dulkóðun
Hægt er að greiða pantanir með greiðslukorti. Öll vinnsla kreditkortanúmera á netinu er dulkóðuð svo að öryggi kaupenda sé tryggt. Allar viðkvæmar upplýsingar, s.s. kreditkortanúmer, sem gefnar eru upp við pöntun á vef Monu eru dulkóðaðar áður en þær eru sendar til okkar, til að tryggja að óviðkomandi aðilar geta ekki komist yfir upplýsingarnar.
Netverð (verð)
Öll verð í netversluninni eru með virðisaukaskatti. Vinsamlegast athugaðu að verðið á netversluninni getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.
Vörur
Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörurnar okkar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir.
Skilaréttur
Við hjá Monu viljum að þú sért ánægður með það sem þú verslar hjá okkur og ef ekki, þá getirðu skilað því sem þú keyptir og fengið endurgreitt innan 30 daga. Til þess að við getum endurgreitt þér þarftu að skila vörunni í óopnuðum upprunarlegum umbúðum, í upprunalegu útliti og láta kvittun fylgja með. Þú getur sent okkur vöruna í pósti á eiginn kostnað. Sendingakostnaður er aðeins endurgreiddur ef um galla er að ræða. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Fullum trúnaði er heitið vegna persónuupplýsinga. Við leggjum áherslu á að varðveita upplýsingar þínar á öruggan hátt.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.