13.03 2011

Já - Þú ert með G-blett! Grein eftir Klöru af Bleikt.is

Hann er umdeildur, eftirsóttur og sveipaður kitlandi leynd sem allar konur þrá að svipta hulunni af. G – bletturinn hefur verið deiluefni vísindamanna í hartnær sextíu ár og eftir allan þennan tíma er svæðið enn til rannsóknar. Allar konur hafa heyrt um hann; sumar segjast þekkja svæðið af eigin raun meðan aðrar hafa einungis heyrt hans getið af afspurn.

Svo vinsæll er hann og eftirsóttur að sjálf Oprah Winfrey hefur tekið hann til umfjöllunar í þáttum sínum. Forviða vinkonur hvísla gjarna feimnislega um hann yfir kaffibolla, drekkhlaðnar hillur forboðinna unaðsverslanna svigna undan leikföngum sem eru hönnuð með það eitt í huga að gæla við blettinn og vart er til sá fullorðni karlmaður, sem ekki hefur einhverju sinni lesið sér í laumi til um staðsetningu hans í þeirri von að verða fær um að veita ástkonu sinni unað sem hún mun aldrei gleyma.   

Smá líffræði: Hvar er hann staðsettur?

 

Gräfenberg bletturinn, eins sexí og raunverulegt nafn hans nú hljómar, er baunlaga svæði á fremri vegg innri kynfæra kvenna sem nær frá 2 – 7 cm frá leggangaopinu. Þær rannsóknir sem styðja tilvist unaðssvæðisins hafa sýnt fram á að G – bletturinn er gerður úr sama vef og snípurinn og sumir ganga svo langt að segja G – blettinn eins konar framlengingu á snípnum.  

 

G – bletturinn sjálfur liggur vel varinn undir þéttum veggnum og þarf beina örvun; þéttar, taktfastar hreyfingar og stöðugan þrýsting þar sem hann er staðsettur u.þ.b. 1 cm undir yfirborði legganganna. Þó engar tvær konur séu eins að gerð og lögun, ber þeim konum sem þekkja eigin G-blett saman um að bein örvun á G – blett feli í sér dýpri og öflugri fullnægingu en hægt er að framkalla með beinni örvun á sníp eingöngu.

 

Skemmtilegi hlutinn: Hvernig get ég örvað hann?

 

Flestum ber saman um að ákveðnar samfarastellingar séu fullmikil einföldun á þeirri örvun sem G – bletturinn þarfnast til að konan nái því unaðslega hámarki sem fullnæging af þessari gerð felur í sér. Endurtekin vonbrigði geta skotið upp kollinum þegar hástemmd loforð verða að engu við iðkanir fjölbreytilegra kynlífsleikja og ég hef í ófá skiptin heyrt vinkonur  mínar andvarpa sáran og segja „Ég held að það sé eitthvað að mér. Ég finn ekki G – blettinn."

 

Til allrar hamingju hefur hugarflug þeirra sem hanna unaðsleikföng fyrir pör tekið stórstígum framförum í takt við aukna þekkingu nútímans. Í dag eru til fjölbreytileg leikföng sem eru hönnuð með það eitt í huga að gæla við G – blettinn og ber þar hæst hinn margverðlaunaða We – Vibe titrara, sem fór algera sigurför um heiminn árið 2009. Þetta örsmáa tæki, sem er U laga að gerð, var valið leikfang ársins á síðasta ári og ekki að ástæðulausu.

 

Athyglisvert: Hvernig virkar leikfangið?

 

Leikfangið, sem er forvitnilegt að lögun, er hannað til noktunar meðan á samförum stendur og er smeygt inn í leggöng konunnar áður en atlotin hefjast. Öðrum enda þess er ætlað að þrýsta á G – blettinn í takt við taktfastar hreyfingar karlmannsins meðan sá hluti sem vísar út, örvar og þrýstir á snípinn við atlotin. Sleipiefni er lykilatriði við notkun We – Vibe og skyldi alltaf hafa við hendina, meira að segja meðan á forleik stendur.

 

En We – Vibe ertir ekki einungis. Þetta örsmáa U – laga undraleikfang er framleitt úr silkimjúku silikonefni sem er hættulaust að snerta. Tækið er þráðlaust og það titrar. Sjö taktstillingar og tvær hraðastillingar gera að verkum að hægt er að stýra örvun. Litla undratækið er stöðugt, hægt að nota í öllum hugsanlegum stellingum og kemur þægilega á óvart að sögn þeirra þúsunda kvenna sem hafa, eftir langa og stranga leit, loks flett ofan af kvenlegri leynd Gräfenberg blettsins og þannig rekið vísindamenn um víða veröld á gat.  

17.11.2011

Leikum okkur....

Kynlífshjálpartæki hafa þróast og breyst undanfarin ár elskan. Frá því að vera „sleazy” tæki sem fyrst og fremst fullnægðu hugarórum karla í að vera smart, sexí og þróuð með þarfir beggja kynja í huga, hvað sem þú svo fílar í svefnherberginu.

31.07.2010

Kynhvötin er lævís kisa eða hvað….

Kynlíf er mikilvægur þáttur í lífi hvers einstaklings og vilja flestir upplifa sig sem hamingjusamar kynverur. Að upplifa sig kynþokkafulla(nn), kynferðislega virka og fullnægð eru sjálfsögð réttindi og svo er það bara svo gaman að stunda gott kynlíf!

20.04.2011

Þessi blessaða fullnæging

Var að fatta að fullnæging er dálítið eins og páskaegg. Stundum er hún stór, stundum lítil. En hér koma nokkur góð ráð til að ná frekar þessari stóru!

Þjálfaðu grindarbotnsvöðvana þína stelpa!
 
Næst þegar þú ert að pissa prófaðu þá að stoppa bununa með því að herpa saman grindarbotnsvöðvana. Þú getur svo endurtekið æfinguna hvar og hvenær sem er. Sterkir grindarbotnsvöðvar þýða kröftugri fullnægingu svo eyddu góðum tíma í að þjálfa þessa vöðva og þú verður ánægðari með útkomuna en árangurinn í líkamsræktinni! Sérstakir grindarbotnsþjálfar geta líka gert undur og stórmerki.

28.03.2011

Vortilboð á skemmtilegum titrandi g-streng

Fallegar svartar blúndunærbuxur sem gefa vel eftir og passa því á flestar konur. Stjórnaðu sjálf eða notaðu þetta í forleik og gefðu félaga þínum stjórntækið. Fjarstýringin dregur 4-6m.

17.02.2011

Konudagurinn er á sunnudaginn

Brjóttu um hversdagsleikann og gefðu henni skemmtilega gjöf frá monu á konudaginn. Þú getur sótt pakkann í Turninn Smáratorgi í verslun Bútik á 2. hæð eða fengið sent heim. Við sendum alla pakka út samdægurs.

 


01.02.2011

Spennandi hugmyndir fyrir Valentínusardaginn á Monu

Valentínusardagurinn, dagur elskenda er 14. febrúar og er tilvalið að gera eitthvað skemmtilegt og krydda ástarlífið og sambandið. Þó svo að við Íslendingar eigum okkar eigin daga, Bóndadag og Konudag, og margir vilji meina að Valentínusardagurinn sé bara amerísk hefð þá er bara gaman að brjóta upp rútínuna og setja smá krydd í sambandið.






Pokinn minn


Leit