20.04 2011

Þessi blessaða fullnæging


Var að fatta að fullnæging er dálítið eins og páskaegg. Stundum er hún stór, stundum lítil. En hér koma nokkur góð ráð til að ná frekar þessari stóru!

Þjálfaðu grindarbotnsvöðvana þína stelpa!

Næst þegar þú ert að pissa prófaðu þá að stoppa bununa með því að herpa saman grindarbotnsvöðvana. Þú getur svo endurtekið æfinguna hvar og hvenær sem er. Sterkir grindarbotnsvöðvar þýða kröftugri fullnægingu svo eyddu góðum tíma í að þjálfa þessa vöðva og þú verður ánægðari með útkomuna en árangurinn í líkamsræktinni! Sérstakir grindarbotnsþjálfar geta líka gert undur og stórmerki.
 
Slökun
 
Það liggur í augum uppi að það er ólíklegt að þú fáir fullnægingu ef þú ert stressuð og áhyggjufull. Kveiktu á kertum, settu olíu í baðið eða farðu í kvöldgöngu og reyndu að ná fram slökun svo þú fáir það frekar í samförum. Gott nudd getur líka verið frábær leið til að ná fram slökun og skemmtilegur forleikur í leiðinni. Góðar nuddolíur sem ilma unaðslega draga úr streitu og kveikja í flestum. Hafðu í huga að halda þig frá áfengi því það getur deyft taugaenda í leggöngum og þannig minnkað líkurnar á fullnægingu.
 
Réttu honum hjálparhönd
 
Gefðu sjálfri þér smá forskot með því að koma við sjálfa þig og örva áður en þið hefjið samfarir. Mörgum konum þykir gott að nudda sköpin, strjúka geirvörturnar og innanverð lærin og kveikja lostann. Lærðu á líkama þinn og finndu út hvað virkar fyrir þig. Strjúktu þér, nuddaðu og örvaðu í nokkrar mínútur áður en félagi þinn hefst handa og þú ert nær fullnægingunni. Félaga þínum finnst sennilega líka ákaflega sexý að fylgjast með þér…
 
Vertu ofaná
 
Gamalt og gott ráð! Ef þú ert ofaná þá getur þú stjórnað hversu hratt, hægt, djúpt eða grunnt þú vilt að hann fari og að horfa á hann horfa á þig er bara kynæsandi. Staðsettu þig ofaná honum þannig að snípurinn nuddist við líkama hans og snúðu mjöðmunum í hringi til að ná unaðslegri fullnægingu.  
 
Taktu hundinn!
 
Farðu á hnén og liggðu með ennið fram á rúmið og láttu hann taka þig aftan frá. Lyftu mjöðmunum aðeins upp og þá nærðu að nudda og örva snípinn sjálf á meðan samförum stander og unaður frá báðum hliðum er nær örugg leið að fullnægingu.
 
Notaðu sleipiefni!
 
Kynlíf er ekki eins gott ef þú ert þurr. Notaðu því sleipiefni og þú færð miklu meira út úr kynlífinu. Bæði vegna sleipiáhrifa og vegna þess að sleipiefnið gefur þér smá kítl og örvun sem aftur leiðir til þess að fullnægingin kemur frekar og verður kröftugri.
Góður titringur
 
Notaðu titrara, egg eða kítlur.

Annað hvort ein eða með bólfélaga. Þannig nærðu miklu frekar fullnægingu og það verður skemmtilegra í rúminu. Vertu djörf, uppátækjasöm og skemmtilegur bólfélagi og notaðu dót. Æfingin skapar meistarann og finndu út hvaða punkta þarf að snerta til að páskaeggið í ár sé stórt og fullt af unaðslegu sælgæti.

Góðar stundir…

17.11.2011

Leikum okkur....

Kynlífshjálpartæki hafa þróast og breyst undanfarin ár elskan. Frá því að vera „sleazy” tæki sem fyrst og fremst fullnægðu hugarórum karla í að vera smart, sexí og þróuð með þarfir beggja kynja í huga, hvað sem þú svo fílar í svefnherberginu.

31.07.2010

Kynhvötin er lævís kisa eða hvað….

Kynlíf er mikilvægur þáttur í lífi hvers einstaklings og vilja flestir upplifa sig sem hamingjusamar kynverur. Að upplifa sig kynþokkafulla(nn), kynferðislega virka og fullnægð eru sjálfsögð réttindi og svo er það bara svo gaman að stunda gott kynlíf!

28.03.2011

Vortilboð á skemmtilegum titrandi g-streng

Fallegar svartar blúndunærbuxur sem gefa vel eftir og passa því á flestar konur. Stjórnaðu sjálf eða notaðu þetta í forleik og gefðu félaga þínum stjórntækið. Fjarstýringin dregur 4-6m.

13.03.2011

Já - Þú ert með G-blett! Grein eftir Klöru af Bleikt.is

Hann er umdeildur, eftirsóttur og sveipaður kitlandi leynd sem allar konur þrá að svipta hulunni af. G – bletturinn hefur verið deiluefni vísindamanna í hartnær sextíu ár og eftir allan þennan tíma er svæðið enn til rannsóknar. Allar konur hafa heyrt um hann; sumar segjast þekkja svæðið af eigin raun meðan aðrar hafa einungis heyrt hans getið af afspurn.

Svo vinsæll er hann og eftirsóttur að sjálf Oprah Winfrey hefur tekið hann til umfjöllunar í þáttum sínum. Forviða vinkonur hvísla gjarna feimnislega um hann yfir kaffibolla, drekkhlaðnar hillur forboðinna unaðsverslanna svigna undan leikföngum sem eru hönnuð með það eitt í huga að gæla við blettinn og vart er til sá fullorðni karlmaður, sem ekki hefur einhverju sinni lesið sér í laumi til um staðsetningu hans í þeirri von að verða fær um að veita ástkonu sinni unað sem hún mun aldrei gleyma. 

17.02.2011

Konudagurinn er á sunnudaginn

Brjóttu um hversdagsleikann og gefðu henni skemmtilega gjöf frá monu á konudaginn. Þú getur sótt pakkann í Turninn Smáratorgi í verslun Bútik á 2. hæð eða fengið sent heim. Við sendum alla pakka út samdægurs.

 


01.02.2011

Spennandi hugmyndir fyrir Valentínusardaginn á Monu

Valentínusardagurinn, dagur elskenda er 14. febrúar og er tilvalið að gera eitthvað skemmtilegt og krydda ástarlífið og sambandið. Þó svo að við Íslendingar eigum okkar eigin daga, Bóndadag og Konudag, og margir vilji meina að Valentínusardagurinn sé bara amerísk hefð þá er bara gaman að brjóta upp rútínuna og setja smá krydd í sambandið.






Pokinn minn


Leit