17.11 2011

Leikum okkur....

Kynlífshjálpartæki hafa þróast og breyst undanfarin ár elskan. Frá því að vera „sleazy” tæki sem fyrst og fremst fullnægðu hugarórum karla í að vera smart, sexí og þróuð með þarfir beggja kynja í huga, hvað sem þú svo fílar í svefnherberginu.

Í þessari grein ætla ég að renna yfir nokkur spennandi tæki sem kenna þér að ná unaði kynlífstækja úr náttborðsskúffunni.

Bleyttu þig...

 

Ekki loka þig inní svefnherbergi með dótið þitt. Margir af nýjum titrurum og kítlum eru vatnsheld og því hægt að leika með í sturtunni eða baðinu, ein og sér eða með leikfélaga. Vatnið gerir ekkert nema auka á unaðinn og bætir smá hita í leikinn.

 

Ef þú átt ekki dót í sturtuna, kíktu þá á þennan


Vertu þráðlaus

 

Getur þú hugsað þér eitthvað skemmtilegra? Þessar nærbuxur koma með þráðlausri fjarstýringu á snípakítlu sem veit sko alveg hvað hún er að gera. Leiktu þér nú og láttu félaga þinn fá fjarstýringuna sem dregur 4-6m og vá þetta verður gaman!

 

Hver man ekki eftir Katherine Heigl í myndinni The Ugly Truth þar sem hún fær það svo eftirminnilega á veitingastaðnum. Hér má sjá myndbrot af því (http://www.youtube.com/watch?v=K3CWOl1050Q ) og hér má versla þessa skemmtilegu nærbuxur.

 

 

Vertu í formi

 

Gleymdu hlaupabrettinu ef þú virkilega vilt taka á því og auka hjartsláttinn þá skaltu æfa ástarvöðvana. Við vitum allar að grindarbotnsæfingar geta styrkt grindarbotninn og aukið næmni og skynjun sem aftur gefur þér betri fullnægingu og meira að segja leikfélaginn græðir á þessu líka því þú nærð að herpa svo vel utan um félagann að hann rýkur til og kaupir handa þér allar tegundir af grindarbotnsþjálfum.

 

En allir vita að það er ekkert sérlega gaman að gera þessar æfingar, fyrr en núna með Luna kúlunum frá Lelo, og svo eru þær flottar líka.

 

 

Snertu...

 

Ekki flýta þér beint í lokatakmarkið þó það sé auðvitað gott að taka sjortara  öðru hvoru. Njóttu þess að snerta þig og leikfélagann með olíum og nuddtækjum og kannaðu líkamann og hvað það er sem henni/honum finnst gott. Slakaðu á, kveiktu á kertum, settu sexí tónlist á og búðu þig undir unað.

 

Kíktu á olíur hér ef þú átt ekki neitt í skúffunni eða dótakassanum.

Leiktu þér

 

Fylgihlutir! Hugsaðu um bönd, grímur, fjaðrir, svipur og allt það sem er svo skemmtilegt. Það er svo skemmtilegt þegar annað ykkar er bundið og hinn aðilinn fær að kanna og leika sér. Það er svo mikilvægt að brjóta upp rútínu og trúðu mér, leikfélagi þinn æsist allur upp og þín bíður mikil gleði.

 

Kíktu hér á hluti sem gaman er að leika með.

Reyndu að finna hans "blett"

 

Titrarar og kítlur eru ekki bara fyrir þig, vinkona. Þú ættir að prófa að nota dótið þitt á hann í forleiknum og sjá hvað gerist. Mjúk og nett kítla er frábær til að örva karlmanninn á hans næma svæði, milli pungs og endaþarms.

 

 

Þú getur einnig farið skrefinu lengra og sett sleipiefni á kítluna og leikið með það í kringum endaþarm karlmannsins og hann mun láta þig vita hvort honum finnst þetta gott.

 

Kíktu á kítlur hér.  

 

 

Fáðu þér tvöfaldan

 

Dótið þitt er ekki bara í forleik. Sum flott tæki er hægt að nota í samförum sem veitir þér og leikfélaganum tvöfaldan unað. Hmmm, græðgi? Nei, veistu það er bara geðveikt að nota We-Vibe II og maður verður aldrei leiður.

 

Frábær hönnun á leiktæki sem er með 2 mótora sem leika við þig á meðan samförum stendur, nudda lim hans, g-blettinn þinn og sníp, allt á sama tíma. Ávísun á himneska fullnægingu.

 

 

Vertu lengi

 

Vissir þú að leiktæki geta látið kynlífið vara lengur og bætt ris karlmannsins? Titrandi gleðihringur sem fer uppá lim karlmannsins örvar ekki bara, heldur bætir frammistöðu hans svo um munar.

Kíktu hér á úrval gleðihringja.

 

Meira síðar en byrjaðu á þessu og njóttu...


31.07.2010

Kynhvötin er lævís kisa eða hvað….

Kynlíf er mikilvægur þáttur í lífi hvers einstaklings og vilja flestir upplifa sig sem hamingjusamar kynverur. Að upplifa sig kynþokkafulla(nn), kynferðislega virka og fullnægð eru sjálfsögð réttindi og svo er það bara svo gaman að stunda gott kynlíf!

20.04.2011

Þessi blessaða fullnæging

Var að fatta að fullnæging er dálítið eins og páskaegg. Stundum er hún stór, stundum lítil. En hér koma nokkur góð ráð til að ná frekar þessari stóru!

Þjálfaðu grindarbotnsvöðvana þína stelpa!
 
Næst þegar þú ert að pissa prófaðu þá að stoppa bununa með því að herpa saman grindarbotnsvöðvana. Þú getur svo endurtekið æfinguna hvar og hvenær sem er. Sterkir grindarbotnsvöðvar þýða kröftugri fullnægingu svo eyddu góðum tíma í að þjálfa þessa vöðva og þú verður ánægðari með útkomuna en árangurinn í líkamsræktinni! Sérstakir grindarbotnsþjálfar geta líka gert undur og stórmerki.

28.03.2011

Vortilboð á skemmtilegum titrandi g-streng

Fallegar svartar blúndunærbuxur sem gefa vel eftir og passa því á flestar konur. Stjórnaðu sjálf eða notaðu þetta í forleik og gefðu félaga þínum stjórntækið. Fjarstýringin dregur 4-6m.

13.03.2011

Já - Þú ert með G-blett! Grein eftir Klöru af Bleikt.is

Hann er umdeildur, eftirsóttur og sveipaður kitlandi leynd sem allar konur þrá að svipta hulunni af. G – bletturinn hefur verið deiluefni vísindamanna í hartnær sextíu ár og eftir allan þennan tíma er svæðið enn til rannsóknar. Allar konur hafa heyrt um hann; sumar segjast þekkja svæðið af eigin raun meðan aðrar hafa einungis heyrt hans getið af afspurn.

Svo vinsæll er hann og eftirsóttur að sjálf Oprah Winfrey hefur tekið hann til umfjöllunar í þáttum sínum. Forviða vinkonur hvísla gjarna feimnislega um hann yfir kaffibolla, drekkhlaðnar hillur forboðinna unaðsverslanna svigna undan leikföngum sem eru hönnuð með það eitt í huga að gæla við blettinn og vart er til sá fullorðni karlmaður, sem ekki hefur einhverju sinni lesið sér í laumi til um staðsetningu hans í þeirri von að verða fær um að veita ástkonu sinni unað sem hún mun aldrei gleyma. 

17.02.2011

Konudagurinn er á sunnudaginn

Brjóttu um hversdagsleikann og gefðu henni skemmtilega gjöf frá monu á konudaginn. Þú getur sótt pakkann í Turninn Smáratorgi í verslun Bútik á 2. hæð eða fengið sent heim. Við sendum alla pakka út samdægurs.

 


01.02.2011

Spennandi hugmyndir fyrir Valentínusardaginn á Monu

Valentínusardagurinn, dagur elskenda er 14. febrúar og er tilvalið að gera eitthvað skemmtilegt og krydda ástarlífið og sambandið. Þó svo að við Íslendingar eigum okkar eigin daga, Bóndadag og Konudag, og margir vilji meina að Valentínusardagurinn sé bara amerísk hefð þá er bara gaman að brjóta upp rútínuna og setja smá krydd í sambandið.






Pokinn minn


Leit