Mánabikarinn er úr silikoni og endist í fjölda ára og með því verndar þú jörðina því þú ert ekki að henda dömubindum og töppum sem safnast upp.
Einstaklega þægilegur og einfaldur í notkun. Klemmir hann saman milli tveggja fingra og settur upp í leggöngin, eins langt og þú kemur honum upp. Síðan sleppir þú takinu af bikarnum og snýrð örlítið og þá opnast hann. Athugaðu að þvo hendurnar áður.
Bikarinn tekur um 30 ml af tíðablóði og því þarftu að tæma á nokkurra tíma fresti á fyrstu dögum blæðinga en svo dugar að tæma morgna og kvölds. Fínt að setja bikarinn upp í sturtunni á morgnana. Kostirnir eru frábærir; þú getur stundað íþróttir, sund, kynlíf (án samfara), getur jafnvel sofið örugg nakin!
Til að fjarlægja bikarinn þá er best að sitja á klósettinu eða vera í sturtunni og toga í stilkinn sem á að nota til að fjarlægja bikarinn. Stilkurinn er u.þ.b. 2 cm og sumar konur þurfa að klippa af honum svo hann nuddist ekki við skapabarmana en passaðu þig að klippa ekki of mikið. Við lok blæðinga þá einfaldlega þværð þú bikarinn með volgu vatni og nokkrum sinnum á ári, 2-3 er allt í lagi að láta hann liggja í smá edikblöndu.
Bikarinn endist í 10 ár! Þú sparar hundruði þúsunda á notkun bikarsins.
ATH! Mánabikarinn er unnin úr silkioni og er latex frír.
Það er 90 daga skilafrestur á Bikarnum.
Ath. Við tökum ekki við Bikarnum til baka ef þú hefur klippt stilkinn nærri alveg af, farið illa með hann, ekki farið eftir leiðbeiningum og eyðilagt eða lent í óhappi.
Kemur í 2 stærðum: A - fyrir konur sem hafa átt barn/börn (leggangafæðingu) B - fyrir konur sem eiga ekki börn eða hafa farið í keisara
Sjá myndband hér!
Varan er til á lager og pöntun þín verður afgreidd daginn eftir að hún berst. Það tekur venjulega 1-4 virka daga að fá vöruna senda heim með Íslandspósti. Ef þú kýst að sækja vöruna þá getur þú fengið hana afhenda í Bútik í Turninum, Smáratorgi 3 (2.hæð) í Kópavogi milli kl 9 og 14 alla virka daga.
Starfsfólk Monu