Þú þarft að skoða sérstaklega umhirðu á þófum ef:
1. Hundurinn sleikir eða er að naga þófana.
2. Haltrar eða tvíhoppar.
3. Rauðar og bólgnar loppur.
4. Sár og útferð.
5. Hármissir.
6. Sár með hrúður og blöðrur.
7. Skurður, slit og rifur.
8. Sprungnar og rifnar neglur.
Ef eithvað af þessu á við er sniðugt að kíkja til dýralæknis.
Vegna óhreinlætis getur myndast sveppasýking milli þófana, sýking eða sprungur. Á veturna þarf að hafa í huga að það er salt og sandur á götum/ göngustígum og fer það virkilega illa með þófana. Þegar frost er úti er líka líklegra að þófarnir springi. Góð áminning er að þrífa þófana með blautþurkum eða í fótabaði eftir hverja göngu á veturnar. Fylgjast þarf svo með þófunum reglulega yfir aðrar árstíðir.
Skór! Hundaskór hjálpa mikið til að verja þófana gegn öllu svo sem óhreinindum og kulda.
Hár undir þófum?
Þófarakvél! Passa þarf að snyrt sé vel undir þófum á þeim hundum sem safna hárum þar undir. En snyrta þarf hárinn á lámarki 3 vikna fresti. Snjór og annar viðbjóður festist í hárunum sem gerir það að verkum að það gæti valdið sýkingu. Ásamt því þau renna á gólfi sem geta valdið slysum. Ekkert mál er að græja þetta sjálfur heima og vantar bara þófarakvél í það verkefni. Setjum okkur í spor hundsins. Ýmindaðu þér að þú sért alltaf í ullasokkum sem rennur á flestu undirlægi.
Sprungnir og þurrir þófar?
Ekkert mál, þrífðu þá reglulega & notaðu krem. Ekki verra ef þú notar skó líka. Forðastu að vera á svæðum þar sem eithvað geti farið inná milli þófana og í sprungur, einsog sandur eða hraun. Passa þarf vel hvar voffa er leyft að labba ef hann er ekki í skóm og er með sprungna eða þurra þófa.
VIÐ MÆLUM MEÐ paw n nose balm. en það hefur virkað mjög vel gegn sprungnum og þurrum þófum.
]]>
Af hverju hafa hundar klær?
Klær hunda þjóna ýmsum tilgangi. Þær hjálpa þeim að ná gripi við jörðina þegar þeir hlaupa, þær koma sér lika afskaplega vel þegar það þarf að klóra sér og hægt er að nýta þær sem verkfæri.
Hundaklær koma í mörgum litum. Klær hunda eru mismunandi á litinn frá hvítum yfir í brúnar og helsvartar. Ef hundurinn þinn er með ljósar klær, til hamingju. Þetta mun auðvelda notkun á naglaklippum því þú munt geta séð kvikuna og forðast að klippa í hana. Erfiðara er að sjá kviku undir dökkum klóm. Þú gætir jafnvel tekið eftir því að hundurinn þinn hefur nokkra liti af klóm, sérstaklega ef hann eða hún er með marglitan feld.
Klærnar á afturlöppum hunda eru yfirleitt styttri og vaxa hægar, svo það þarf ekki að klippa þær eins oft og framklærnar. Suma hunda þarf aldrei að klippa þar sem þeir sjá um það sjálfir með því að spæna þeim upp í göngum.
Vissir þú að neglur hunda geta vaxið í hring? ef naglaumhirða er ekki sinnt getur nöglin farið í hring & skorist inn í hundinn, jafnvel brotnað með tilheyrandi sársauka.
Ekki gleyma klippa sporna! Sporinn hefur þannig séð engan tilgang heldur er oftast bara húð + nögl. margir hundar fæðast með spora og jafnvel fleiri en einn.
Vissir þú þetta? Hundar eru með ilmkirtla í loppunum. Nei, það þýðir ekki að þeir geti lyktað í gegnum lappirnar. Það þýðir að þeir leggja inn eigin lykt. Þegar þú sérð hund labba um svæði sitt og síðan klóra í jörðina (Spóla) þá eru það lappirnar hans að „merkja“ merki sitt, bæði sjónrænt (með því að skilja eftir sig rispur) og lykt.
- Kvikan lengist með færri naglaklippingum! Hægt er þó að stytta kvikuna með réttir aðferð á nagla snyrtingum.
Hversu oft á að klippa hunda neglur?
Það þarf að klippa neglur flestra hunda á 7-14 daga fresti. Ef hundurinn sér um þetta nokkurn veginn sjálfur þá sjaldnar. aldrei láta líða of langt á milli því þá lengist kvikan.
Of langar eða langar klær valda því að hundur missir grip í loppunni, sem gerir það auðveldara fyrir hann að renna. ásamt því að hundurinn getur byrjað að labba skagt/vitlaust og ýtir það undir liðavandarmála. Langar klærnar eru líklegri til að rifna, klofna og brotna, sem getur verið mjög sársaukafullt og gætir þú þurft dýralækna aðstoð. þegar hundur stendur eða gengur með langar klær þrýstir hann á ranga hluta fótsins, sem veldur sársauka og óþægindum.
Við mælum með Nagglaþjöl!
Sem hundasnyrtir hef ég prufað ýmsar leiðir til að snyrta neglur. Nú á ég t.d. hund sem er algjör drama drottning við naglaklippurnar. Ég fékk mér Naglaþjöl og vá þetta breytti öllu. það er líka hentugra fyrir hunda sem eru ekki vanir. að venja á naglaþjölina er auðveldara heldur en klippur.
VIÐ EIGUM TIL NAGLAÞJÖL Í NETVERSLUN.
Hvernig á að klippa?
Ef þú treystir þér í að klippa sjálfur þá bara vá þú átt hrós skilið. En þá set ég hér myndir og myndband sem geta hjálpað. Muna skal að það þarf alltaf að venja hund á naglasnyrtingar.
https://www.youtube.com/watch?v=VcjEhriDJo0
Ef þú treystir þér ekki í naglaklippingar leitaðu til Hundasnyrtis eða dýralæknis, það er ekkert að því að biðja um smá hjálp.
Það skiptir máli að venja hundinn hægt og rólega á naglaklippingar!
]]>
MUNA AÐ FINNA RÉTTU STÆRÐINA.
Góð þumalputta regla: Ekkert eitt beisli hentar öllum! En mæli ég með svokölluðum Y & H beislum, þau sitja best á hundinum.
Mjög gott myndband á Youtube sem mér finnst næstum skildu áhorf, það sýnir helstu kosti og galla við margar tegundir af beislum.
https://www.youtube.com/watch?v=C8W1nPXLMFE
VELJA BEILSI
Á þessari mynd má sjá rétt staðsett beisli. Best er að skoða staðsetningu á beislinu með smá togi, setjum þetta í aðstæður eins og þú værir í göngu með hundinn.
1. Passa að beislið sé rétt staðsett á háls. gott að miða við að beislið sé um hálsinn svipað og hásól.
2. hálsbandið þarf að fara yfir herðablaðið á hundinum og er auðvelt að finna þegar þú þreifar.
3. beislið á að vera staðsett fyrir ofan þetta bein.
4. Hafa skal nóg pláss frá handarkrikum eða að lágmarki 1-2 putta meðan við tos á beislinu. ef ekki þá mun beislið skerast og meiða hundinn í handarkrikum þegar hann hreyfir sig.
5. Aldrei á að staðsetja beislið lengra en hjá síðustu 3 rifbein. (Skilja eftir 3 rifbein)