Collection: AuroraWilc

Aurora Wilc – fatnaður og fylgihlutir fyrir mjóhunda

Aurora Wilc hannar fallegan, vandaðan og hagnýtan fatnað og fylgihluti fyrir mjóhunda og aðra viðkvæma hunda sem þurfa auka hlýju og þægindi. AuroraWilc, er handgert í póllandi. 

Hönnunin byggir á raunverulegum þörfum hundsins – frá sérsniðnum sniðum fyrir djúpa bringu, mjótt mitti og langan háls yfir í mjúk efni sem veita hlýju án þess að takmarka hreyfingu. Í úrvalinu má meðal annars finna ullarflíkur, yfirhafnir, samfestinga, peysur, teppi, búrhlífar og annan fylgihlut.

Aurora Wilc leggur áherslu á gæði, þægindi og meðvitað efnisval. Þar sem því verður við komið eru notaðar náttúrulegar trefjar á borð við ull og bómull, sem eru endurnýjanlegar og lífbrjótanlegar.